Þorbergsson og Loftsdóttir lögmannsstofa sf. var stofnuð árið 1997.

Lögmannsstofan hefur veitt leiðandi verktakafyrirtækjum lögfræðiþjónustu og ráðgjöf um árabil auk þess að starfa fyrir ýmis þjónustufyrirtæki, opinberar stofnanir, lífeyrissjóði, flutningafyrirtæki og fleiri aðila.

Lögmenn stofunnar hafa víðtæka þekkingu og reynslu á sviði verktakaréttar, samningaréttar, kröfuréttar, fasteignakauparéttar, skipulags og byggingamála, eignaréttar og fjármunaréttar. Lögð er áhersla á áreiðanlega og trausta þjónustu allt frá fyrstu ráðgjöf til málflutnings fyrir dómi.